Lýsing
Dúx gerildeyðir handspritt 70% er fyrir sótthreinsun á höndum og tækjum. Dúx gerildeyðir handspritt inniheldur húðverndandi og húðmýkjandi efni sem næra húðina og styrkja náttúrulegar varnir hennar. Dúx gerildeyðir handspritt veldur ekki tæringu málma né mislitun á tækjum og fötum. Dúx gerildeyðir gel er sótthreinsir á hendur og húð fólks í matvælaiðnaði, sjúkrahúsum, veitingastöðum og öðrum stöðum þar sem persónulegt hreinlæti og hreinlæti starfsfólks skiptir máli.
Notkun:
Dúx gerildeyðir handsprittið er ætlað milli handþvotta. Vætið hendur með Dúx sótthreinsi handspritti og nuddið uns efnið hefur gufað upp.