Sýruduft 5 kg

Sýruduft 5 kg

6.090 kr. með VSK / 4.911 kr. án VSK

Á lager

Vörunúmer: 8-226 Flokkur: Merki:

Lýsing

Sýruduft er til aðallega ætlað til steinhreinsunar á mjólkurílátum og mjaltakerfum. Sýruduft er einnig hentugt til sýruþvotta í öðrum greinum matvælaframleiðslu, t.d. í fiskimjölsverksmiðjum.

Notkun:

Blöndunarhlutfall er breytileg eftir aðstæðum. Notkunarhitastig er 20-80°C og verður árangurinn betri eftir því sem það er hærra.
Í rörmjaltakerfi án þvottavéla dugir í flestum tilfellum að nota 1,2% w/w blöndu (125 g í 10 l af vatni) sem jafngildir 1,0% v/v lausn (1 dl í 10 l af vatni), en við þykkar útfellingar kann að vera nauðsynlegt að tvöfalda magið.
1. Látið þvottalausnina hringrása í 30 mínútur.
2. Tæmið lögnina með hreinsitöppum.
3. Skolið vel með köldu vatni.
4. Þvoið kerfið á venjulegan hátt.

Rörmjaltakerfi með þvottavél dugar í flestum tilfellum að setja 2-3 dl í hólf þvottavélarinnar, en við þykkar útfellingar kann að vera nauðsynlegt að nota tvöfalt það magn.
1. Stillið á venjulegt þvottakerfi og ræsið vélina.
2. Tæmið lögnina með hreinsitöppum.
3. Þvoið kerfið á venjulegan hátt.

Sýruþvo skal a.m.k. á 8 daga fresti, en þó í samráði við mjólkureftirlitsmann.