DRY COW Forðastautar

DRY COW Forðastautar

22.624 kr. með VSK / 18.245 kr. án VSK

Á lager

ALL-TRACE DRY COW forðastautar eru ætlaðir kúm í geldstöðu til að sjá fyrir næringarþörf af sex snefilefnum og þremur vítamínum þegar nægilegt magn þeirra er ekki að finna í beit.

Forðastauturinn liggur í keppnum við fremri hluta vambarinnar og leysast þaðan hægt frá stöðugu yfirborði  og veitir þannig stöðugt flæði af snefilefnum og vítamínum til dýrsins í um það bil 4 mánuði. Forðastautarnir leysast fullkomlega upp og engar leifar verða eftir í vömbinni.

ALL-TRACE DRY COW forðastautarnir eru ætlaðir handa fullorðnum mjólkurkúm sem vega meira en 400 kg.

Vörunúmer: 8-474 Flokkur: Merki:

Lýsing

Hverju dýri skal gefa tvo ALL-TRACE DRY COW forðastauta.

Ef varnarhjúpur forðastauts er tugginn eða skemmist við gjöf mun forðastauturinn leysast upp hraðar. Gætið þess að missa forðastautana ekki á hart yfirborð.

Ekki er þörg á að gefa kopar, kóbalt, selen eða joð til viðbótar á verkunartíma forðastautsins.

Ef við á skal forðast samhliða viðbótargjöf af aukaefnum með hámarksinnihaldi af öðrum uppruna en þeim sem er í forðastautinum.

Fyrir notkun er ráðlagt að fá ráðleggingar frá dýralækni eða næringarfræðingi varðandi:

  1. Jafnvægi snefilefna í daglegri gjöf.
  2. Stöðu snefilefna í hjörðinni.

Fyrir notkun, vinsamlegast sjá leiðbeiningar sem prentaðar eru á innanverðum umbúðum.